15. maí 2009
Er bíllinn tjónaður
Við þjónustum öll tryggingafélög!
Ef þú lendir í tjóni með þína bifreið þá getu þú fengið bílaleigubifreið hjá okkur sem tryggingafélagið greiðir daggjaldið.
Hver er réttur þinn í slíku tjóni ?
Hér eru nokkrar ábendingar og upplýsingar til þín sem komið gætu að góðum notum.
Þegar bílaleigubifreið er leigð vegna bótaskylds ábyrgðartjóns á einka- eða fyirrtækjabifreið er leigusamningur skráður á eiganda/leigutaka og ber hann því fulla ábyrgð á bifreiðinni meðan á leigu stendur.
Tryggingafélög greiða eingöngu leigu á minnstu gerð bifreiða meðan á leigu stendur. Innifalið er 100km akstur og kaskótrygging með Kr. 120.000.- í sjálfsábyrgð.
Bensínkostnaður er greiddur af leigutaka og ber honum að skila bifreiðinni með fullum bensíntanki í lok leigunnar.
Almenn regla tryggingafélaga er sú að ekki er greitt fyrir bílaleigubifreið er tafir verða á viðgerð vegna vöntunar á varahlutum eða tafir sem tryggingafélagið getur ekki borið ábyrgð á.
Nauðsynlegt er fyrir leigutaka að fá samþykki tryggingafélags fyrir greiðslu þeirra daga sem áætlað er að viðgerð taki og fylgjast með að hún gangi eðlilega fyrir sig.
ATH. Leigutaka ber að greiða fyrir þá daga sem ekki fást samþykktir hjá viðkomandi tryggingafélagi.
Ef um kaskótjón er að ræða þarf samþykki tryggingafélags fyrir fjölda leigudaga.
Til baka
|